ritskinna.is
Vængjatök - hugverk sunnlenskra kvenna - Ritskinna
ISBN: 9789979959786 Höfundar: 151 sunnlenskar konur sjá efnisyfirlit Kápa: innbundin, blaðsíður: 388, stærð: 17,2 cm x 24,2 cm Útgefandi: Pjaxi 2004 í dag sér Ritskinna um sölu og dreifingu. Verkið inniheldur hugverk eftir 151 sunnlenskar konur. Ferðalagið hefst á 17. öld með kveðskap Steinunnar Finnsdóttur og Sigríðar skáldu. Með því að ferðast með tímans fljóti geta lesendur upplifað samtíma hvers höfundar og oft leynist stórbrotinn lífsferill í æviágripum höfundar. Yrkisefnið kvenna er oft tengt því sem hjartanu er kærast og gefur þeim sem leita eftir færi á að komast í innstu hugarþel alþýðukvenna sem byggt hafa Suðurland á liðnum öldum. Þó svo að önn dagsins hafi verið mikil hlýddu margar þeirri þörf hjartans að veita þránni til sköpunar útrás í bundnu máli eða lausu. Vængjatök voru tekin, knúin af sköpunarþrá hjartans, öld af öld. Hægt að versla bókina hjá Bókalind á www.bokalind.is https://bokalind.is/baekur/hugverk-kvenna/